Á föstudaginn, þann 21. ágúst, stefnir verktaki á vegum Vegagerðarinnar að malbiksframkvæmdum á Reykjavegi frá hringtorgi Vesturlandsvegar að hringtorgi neðan Krikaskóla.
Gert er ráð fyrir að malbiksframkvæmdir hefjist eftir kl 19:00 og standi yfir fram á nótt.
Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni mun Reykjavegi verða lokað á milli Vesturlandsvegar og Reykjalundarvegar, hjáleið verður um Skarhólabraut. Krikahverfi og Teigahvefi lokast alveg á meðan malbikun hringtorgs fer fram.
Upplýsingamerki verða sett upp með fyrirvara um framkvæmd verkins.
Tengt efni
Lokun á hluta Þverholts 24. apríl 2024
Lokun á Vefarastræti vegna framkvæmda 23. apríl 2024
Undirritun samnings um fyrsta áfanga nýframkvæmda á Varmárvöllum
Í dag, föstudaginn 12. apríl var skrifað undir samning við fyrirtækið Óskatak vegna fyrsta áfanga nýframkvæmda á Varmárvöllum.