Föstudaginn 4. júlí, frá kl. 09:00 – 15:00 verður unnið við malbiksyfirlagnir á Baugshlíð frá Skálahlíð að Vesturlandsvegi. Hjáleið er um Vesturlandsveg, Langatanga og Bogatanga.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi.
Athugið að þessi áætlun er veðurháð og getur því tekið breytingum.