Á hádegi þann 20. maí lauk kosningu í Krakka Mosó 2025. Á kjörskrá voru 1.179 krakkar á mið- og unglingastigi. Alls greiddu 997 krakkar atkvæði og reyndist kjörsókn því um 85%.
Talning atkvæða hófst kl. 13.00 og lauk 14.30. Krakkar úr hverjum skóla fylgdust með framkvæmd og fulltrúar þeirra tóku þátt í sjálfri talningunni.
Þrjú verkefni voru kosin til framkvæmdar og var bæjarstjóra afhent niðurstaðan í Helgafellsskóla þar sem talning atkvæða fór fram.
Þrautabraut á vatni
Þrautabraut úr ýmiss konar trjábolum yfir vatn. Fyrirmyndin er vatnsþrautabrautin í Kjarnaskógi fyrir utan Akureyri. Hentar bæði börnum og unglingum.
Stór aparóla
Há og löng aparóla með upphækkuðum byrjunarpalli. Hugsuð fyrir eldri börn og unglinga. Staðsett í brekku þannig að hægt sé að ná ágætis hraða. Nógu há til þess að fæturnir rekist ekki í jörðina.
Snúningsróla
Snúningsróla með fjórum örmum og sætum. Rólan fer í hringi og upp og niður á sama tíma. Hugsuð fyrir börn frá sex ára aldri.
Verkefnin verða framkvæmd sumarið 2025.