Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Stóra upp­lestr­ar­keppn­in í 7. bekk fór fram í há­tíð­ar­sal Varmár­skóla fimmtu­dags­kvöld­ið 27. mars.

Tíu nem­end­ur úr grunn­skól­um Mos­fells­bæj­ar, Lága­fells­skóla og Varmár­skóla kepptu til úr­slita.

Úr­slit­in urðu þann­ig að Ástríð­ur Magnús­dótt­ir úr Lága­fells­skóla varð í fyrsta sæti, Andri Már Guð­munds­son úr Lága­fells­skóla varð í öðru sæti og Arndís Hjör­leifs­dótt­ir úr Varmár­skóla varð í þriðja sæti.

Margt var um mann­inn á þessu há­tíð­lega kvöldi og fengu gest­ir að heyra kepp­end­ur lesa brot úr sög­unni Ertu guð, afi eft­ir Þor­grím Þrá­ins­son og ljóð eft­ir Erlu (Guð­finnu Þor­steins­dótt­ur). Auk þess lásu kepp­end­ur ljóð sem þeir völdu sjálf­ir. Skóla­kór Varmár­skóla söng þrjú lög auk þess sem nem­end­ur úr Lista­skóla Mos­fells­bæj­ar fluttu lif­andi tónlist.

Á mynd­inni eru sig­ur­veg­arn­ir ásamt bæj­ar­stjóra, formanni fræðslu­nefnd­ar og skóla­stjór­um Varmár­skóla og Lága­fells­skóla.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00