Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk fór fram í hátíðarsal Lágafellsskóla fimmtudagskvöldið 7. mars.
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk fór fram í hátíðarsal Lágafellsskóla fimmtudagskvöldið 7. mars. 10 nemendur úr grunnskólum Mosfellsbæjar, Lágafellsskóla og Varmárskóla kepptu til úrslita.
Úrslitin urðu þannig að Tjörvi Gissurarson úr Lágafellsskóla varð í fyrsta sæti, Amanda Lind Davíðsdóttir úr Varmárskóla varð í öðru sæti og Agnes Emma Sigurðardóttir úr Varmárskóla varð í þriðja sæti.
Margt var um manninn á þessu hátíðlega kvöldi og fengu gestir að heyra keppendur lesa brot úr sögunni Benjamín Dúfa eftir Friðrik Erlingsson og ljóð eftir Þóru Jónsdóttur. Auk þess lásu keppendur ljóð sem þeir völdu sjálfir. Skólakór Varmárskóla söng þrjú lög auk þess sem þrír nemendur úr Listaskóla Mosfellsbæjar fluttu lifandi tónlist.
Tengt efni
Nemendur úr Helgafellsskóla plöntuðu birkiplöntum
Tveir vinabekkir 1.B og 8.B úr Helgafellsskóla plöntuðu birkiplöntum úr Yrkjusjóði nálægt Köldukvísl nýlega.
Frístundaávísun hækkar
Þann 15. ágúst hófst nýtt tímabil frístundaávísunar í Mosfellsbæ.
Líf og fjör í Mosó í allt sumar
Það er nóg um að vera í Mosfellsbæ í sumar.