Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk fór fram í hátíðarsal Varmárskóla fimmtudagskvöldið 15. mars.
10 nemendur úr grunnskólum Mosfellsbæjar, Lágafellsskóla og Varmárskóla kepptu til úrslita. Úrslitin urðu þannig að Erna Jökulsdóttir úr Varmárskóla varð í fyrsta sæti, Halldór Ívar Stefánsson úr Varmárskóla varð í öðru sæti og Selma Sif Haraldsdóttir úr Lágafellsskóla varð í þriðja sæti.
Margt var um manninn á þessu hátíðlega kvöldi og fengu gestir að heyra keppendur lesa brot úr sögunni Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og ljóð eftir Gyrði Elíasson. Auk þess lásu keppendur ljóð sem þeir völdu sjálfir. Skólakór Varmárskóla söng þrjú lög auk þess sem þrír nemendur úr Listaskóla Mosfellsbæjar fluttu lifandi tónlist.