Kynningafundir á niðurstöðum könnunar sem Rannsókn og greining gerði á lýðheilsu nemenda úr 8. – 10. bekk og fram fór í grunnskólunum á vorönn 2016.
- Varmárskóli
13. október kl. 8:15 - Lágafellsskóli
14. október kl. 8:15
Fundurinn stendur í eina klukkustund og í boði verður kaffi og rúnstykki frá kl. 8:00.
Kynntar verða niðurstöður varðandi líðan nemenda í skóla, samskipti, samveru við foreldra, svefnvenjur, tölvunotkun, áfengis og fíkniefnaneyslu og fleira er áhrif hefur á almenna lýðheilsu og vellíðan ungmenna.
Könnunin var gerð í öllum sveitarfélögum landsins á sama tíma og er það menntamálaráðuneytið sem lætur framkvæma hana. Á fundinum verða niðurstöður fyrir Mosfellsbæ í heild, höfuðborgarsvæðisins og landsins alls kynntar sem og þróun milli ára rakin.
Kynningin er ætluð foreldrum barna í 5. – 10. bekk svo og öðrum áhugasömum um lýðheilsu ungs fólks í Mosfellsbæ.
Um kynninguna sjá Jón Sigfússon og Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Háskóla Reykjavíkur.
Hvetjum foreldra eindregið til að mæta á annan hvorn fundinn og fá innsýn í áhrifaþætti í umhverfi barna sinna svo og aðra sem koma að vinnu og samskiptum við þennan aldurshóp.