Kennsla stendur til kl. 13:30 í grunnskólum Mosfellsbæjar í dag öskudag. Það má gera ráð fyrir að börnin okkar fari á kreik á þeim tíma með söng og gleði á þessum skemmtilega degi. Vegfarendur eru því hvattir til að gæta sérstaklega varúðar þannig að öll njóti dagsins og komist heil heim.
Fyrirtæki og stofnanir í Mosfellsbæ sem ætla að gefa nammi í tilefni dagsins hafa verið hvött til að byrja ekki fyrr en að skólum lýkur.
Gleðilegan öskudag.