Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði fjölskylduþjónustu í Mosfellsbæ.
Umsóknir skulu berast þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 30. nóvember nk.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma hljóta að jafnaði ekki afgreiðslu.
Aðilar sem fengu styrk á síðasta ári þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfun þess fjár.
Afgreiðsla styrkumsókna fer fram fyrir lok mars 2019.
Tengt efni
Mosfellsbær tekur við starfsemi Skálatúns og ríkið kemur að uppbyggingu fyrir börn og fjölskyldur í Skálatúni í Mosfellsbæ
Fimmtudaginn 25. maí var undirritaður samningur um að Mosfellsbær taki alfarið að sér að annast og þróa áfram þjónustu við íbúa Skálatúns en í dag búa þar 33 einstaklingar.
Ert þú með íbúð til leigu?
Mosfellsbær leitar að íbúðum fyrir flóttafólk, bæði fyrir einstaklinga og barnafjölskyldur.
Mosfellsbær veitir stofnframlög til kaupa eða bygginga á almennum íbúðum 2023
Opið er fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum til að stuðla að því að í sveitarfélaginu verði í boði leiguíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir leigjendur sem eru undir tilteknum tekju- og eignamörkum.