Miðvikudaginn 4. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.
Í sjóðinn geta sótt kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla/frístund í Mosfellsbæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu sem og fræðslu- og frístundasvið í samstarfi við skóla.
Veittir eru styrkir einu sinni á ári úr sjóðnum. Heildarframlag sjóðsins árið 2025 eru 3,5 milljónir.
Að þessu sinni hlutu eftirfarandi verkefni styrk úr sjóðnum:
Félagsfærni í fókus, Varmárskóli
Markmið verkefnisins er að efla félagsfærni nemenda í 3.-6. bekk með skipulagðri og markvissri kennslu í félagsfærni. Verkefnið felst í að búa til heildstæðan kennslupakka þar sem hægt verður að ganga að námsáætlun og námsmarkmiðum fyrir félagsfærni með verkefnum úr ýmsum áttum. Þannig er hugmyndin að tryggja að allir nemendur fái tækifæri til að þróa með sér lykilhæfni í samskiptum, sjálfsþekkingu, samkennd og lausn vandamála. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð 700.000 krónur.
Hvörfin í Hegranesi, Kvíslarskóli
Verkefnið snýr að frágangi og útgáfu á spilinu „Hvörfin í Hegranesi“. Það byggist á spilinu „Varúlfi“ en sögusvið spilsins er skólaferðalag í Skagafjörð þar sem huldufólk úr Hegranesi leynist á meðal nemenda og gerir tilraun til að nema þau á brott. Spilið er hugsað sem námsgagn fyrir lífsleiknikennslu í 7. bekk sem styður við lýðræðisleg vinnubrögð og eflir borgaralega vitund nemenda. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð 200.000 krónur sem er ætlað við að styðja við útgáfu þess t.d. með því að standa undir prentkostnaði.
Solihull innleiðing, geðrækt í samreknum leik- og grunnskóla, Krikaskóli
Verkefnið felst í innleiðingu Solihull aðferðarinnar í Krikaskóla. Markmiðið með því er að efla tengslamyndun og gagnkvæm samskipti milli barna og fullorðinna í skólum og auka þannig við vellíðan, sjálfstraust og virkni nemenda, að skapa samræmd vinnubrögð innan skólans varðandi hegðun, líðan og velferð barna og að styðja við snemmtæka íhlutun m.a. með því að starfsfólk skilji og bregðist við tilfinningum og hegðun barna á faglegan og samræmdan hátt. Verkefnið hlýtur styrk upp á 550.000 krónur.
Sterkari saman – sterk miðja, Lágafellsskóli
Markmið verkefnisins er að efla félagsfærni og sjálfstraust nemenda. Framkvæmdin felst í að þróa og leiða sex vikna námskeið fyrir nemendur á miðstigi þar sem áhersla er lögð á að efla sjálfsþekkingu, seiglu, leiðtogahæfni, samkennd og núvitund með áherslu á verklegar æfingar og samvinnu. Byggt er á rannsóknargrunni og lögð áhersla á að samþætta nútímalega kennsluhætti við þörf fyrir innri styrk nemenda. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð 700.000 krónur.
Tónlistarsmiðjur Listaskóla Mosfellsbæjar í leikskólum Mosfellsbæjar
Markmið verkefnisins er að auka aðgengi leikskólabarna að faglegri og markvissri tónlistarkennslu, að styðja við skapandi þroska barna, kynna gildi tónlistar og efla og styðja við vinnu leikskólakennara að tónlistarsköpun með börnum. Verkefnið felst í tónlistarsmiðjum með 5 ára börnum í leikskólum Mosfellsbæjar þar sem Þórunn Día mun annast kennsluna fyrir hönd Listaskólans. Smiðjurnar eru hugsaðar sem uppbygging og fræðsla um heim tónlistarinnar þar sem börnin fá að upplifa gleði, tjáningu og sköpun í gegnum virka þátttöku í tónlistarleikjum, skapandi verkefnum, spuna, sögum og söng ásamt því að kynnast og læra að leika á hin ýmsu skólahljóðfæri. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð 1.200.000 krónur.
Upplýsinga og tæknimennt í námsveri í Lágafellsskóla með áherslu á forritun og sköpun
Markmið verkefnisins er að veita nemendum í námsveri unglingastigs Lágafellsskóla fjölbreyttar og aðgengilegar leiðir til að tileinka sér grunnatriði forritunar, hönnunar og sköpunar í gegnum notkun á tækjum og ákveðinnar tækni og forritum. Unnið er út frá hugmyndafræðinni „frá hugmynd til afurðar“ og munu nemendur læra forritun, þróa hugmynd, hanna lausn og vinna hana í raunveruleikanum. Verkefnið hlýtur styrk að upphæð 150.000 krónur og er styrkurinn hugsaður til að hefja vinnuna og koma verkefninu af stað.
Nafn sjóðsins Klörusjóður er til heiðurs Klöru Klængsdóttur (1920-2011). Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939 og hóf sama ár kennslu við Brúarlandsskóla hér í bæ og starfaði hún alla sína starfsævi sem kennari í Mosfellsbæ.
Mynd: Alexía Guðjónsdóttir