Mosfellsbær auglýsir eftir umsóknum um styrk til fatlaðs fólks til náms eða verkfæra- og tækjakaupa vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar skv. 25. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Úthlutun fer fram einu sinni á ári og fer upphæð styrkja eftir fjölda umsókna, þó er miðað við að styrkur hverju sinni fari ekki upp fyrir 70.000 kr. til hvers einstaklings.
Skilyrði sem þarf að uppfylla til að eiga rétt á styrk eru:
- Eiga lögheimili í Mosfellsbæ eða Kjósarhreppi
- Hafa náð 18 ára aldri
- Hafa varanlega örorku og uppfylla skilyrði um fötlun samkvæmt 2. gr. laga nr. 38/2018
Enn fremur þurfa að fylgja með umsókn frumrit af kvittunum vegna kaupa á þjónustu eða tækjum.
Sótt er um á þjónustugátt Mosfellsbæjar.
Reglur Mosfellsbæjar um styrkina:
Tengt efni
Styrkir úr Klörusjóði afhentir
Þriðjudaginn 20. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær veitir stofnframlög til kaupa eða bygginga á almennum íbúðum 2023
Opið er fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum til að stuðla að því að í sveitarfélaginu verði í boði leiguíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir leigjendur sem eru undir tilteknum tekju- og eignamörkum.
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2023
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.