Á bæjarhátíðinni Í túninu heima veitti umhverfisnefnd Mosfellsbæjar umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2011.
Veittar voru viðurkenningar fyrir:
- Fallegasta húsagarðinn
- Fyrir fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfismálum
- Fallegustu götuna
Að þessu sinni hlutu hjónin Úlfar Finnbjörnsson og Sigrún Hafsteinsdóttir viðurkenningu fyrir fallegan og hlýlegan garð að Brekkulandi 10, þar sem lögð er áhersla á frumlega hönnun og fjölbreytilegan gróður.
Ákveðið var að veita tveimur fyrirtækjum umhverfisviðurkenningu, fyrirtækinu Bílapartar ehf., Grænumýri 3, fyrir snyrtilegt umhverfi og sérstaka áherslu á umhverfismál, þar sem flokkun og endurnýting er höfð að leiðarljósi og Hestamiðstöðinni Dal, Dallandi, fyrir margra ára ræktunarstarf í tengslum við starfsemi sína þar sem aðbúnaður fyrir dýr og menn er til fyrirmyndar.
Að lokum hlaut Hrafnshöfði viðurkenningu sem fallegasta gata Mosfellsbæjar 2011 þar sem heildaryfirbragð götu er snyrtilegt og margir garðar fallegir og gróðursælir.
Tengt efni
Umhverfisviðurkenningar 2024 afhentar á setningarathöfn bæjarhátíðar
Hátíðardagskrá var í Hlégarði fimmtudaginn 29. ágúst þar sem meðal annars voru veittar umhverfisviðurkenningar.
Hundahlaupið haldið í tengslum við bæjarhátíð
Áhersla á öryggi á bæjarhátíðinni Í túninu heima
Bæjarhátíðin Í túninu heima var formlega sett á hátíðardagskrá í félagsheimilinu Hlégarði í Mosfellsbæ í gær.