Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
2. nóvember 2016

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 41.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar tvær til­lög­ur að deili­skipu­lagi og skv. 1.mgr. 43. gr. sömu laga til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi: Lækj­ar­tún 1, til­laga að deili­skipu­lagi, Frí­stundalóð í Úlfars­fellslandi við Hafra­vatn, til­laga að deili­skipu­lagi og Sölkugata 1-5, til­laga að breyt­ingu á deili­skipu­lagi

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 41.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar tvær til­lög­ur að deili­skipu­lagi og skv. 1.mgr. 43. gr. sömu laga til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi:

Lækj­ar­tún 1, til­laga að deili­skipu­lagi

Um er að ræða nýtt deili­skipu­lag fyr­ir lóð­ina nr.1 við Lækj­ar­tún. Til­lag­an fel­ur í sér að skipta upp lóð­inni í tvær lóð­ir nr.1 og nr.1a. Á lóð nr.1 stend­ur nú­ver­andi hús óbreytt en á lóð­inni nr.1a er skil­greind­ur nýr bygg­ing­ar­reit­ur 140 fm. að stærð, þar sem byggja má hús á tveim­ur hæð­um. Að­koma lóð­ar­inn­ar verð­ur frá Að­al­túni. Hámarsknýt­ing­ar­hlutt­fall er 0.35.

Frí­stundalóð í Úlfars­fellslandi við Hafra­vatn, til­laga að deili­skipu­lagi

Um er að ræða nýtt deili­skipu­lag fyr­ir frí­stundalóð með landnr. 175427. Lóð­in er skráð 2400 fm. í Þjóð­skrá Ís­lands. Að­koma lóð­ar­inn­ar verð­ur frá Reyn­is­vatns­vegi. Bygg­ing­ar­reit­ur er sýnd­ur á deili­skipu­lagi og skulu all­ar bygg­ing­ar standa inn­an hans. Inn­an bygg­ing­ar­reits er gert ráð fyr­ir að­al­húsi allt að 60 fm. að stærð og geymslu­skúr 12 fm. Nýt­ing­ar­hlut­fall er 0.03.

Sölkugata 1-5, til­laga að breyt­ingu á deili­skipu­lagi

Um er að ræða breyt­ingu á deili­skipu­lagi að Sölku­götu 1, 3 og 5. Breyt­ing­in felst í því að sam­eina lóð­ina nr. 1 og 3 og heim­ila einn­ar hæð­ar par­hús í stað tveggja tveggja hæða ein­býl­is­húsa. Á lóð­inni nr. 5 er gert ráð fyr­ir einn­ar hæð­ar ein­býl­is­húsi í stað tveggja hæða ein­býl­is­húss. Að öðru leiti haldast skil­mál­ar óbreytt­ir.

Of­an­greind­ar til­lög­ur verða til sýn­is í þjón­ustu­veri

Mos­fells­bæj­ar Þver­holti 2, frá 4. nóv­em­ber 2016 til og með 16. des­em­ber 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær at­huga­semd­ir.

At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal senda þær til skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ, eða í tölvu­pósti til und­ir­rit­aðs eigi síð­ar en 16. des­em­ber 2016.

4. nóv­em­ber 2016,
Skipu­lags­full­trúi Mosf ells­bæj­ar

 

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00