Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
7. apríl 2016

Til­laga um breyt­ing­ar á hús­gerð­um við Ástu-Sóllilju­götu og Bergrún­ar­götu, og til­laga að breytt­um skil­mál­um fyr­ir frí­stunda­hús í Hamra­brekk­um. At­huga­semda­frest­ur er til 24. maí 2016.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar tvær til­lög­ur að breyt­ing­um á deili­skipu­lagi:

Helga­fells­hverfi, 2. áfangi
Til­lag­an varð­ar ann­ar­s­veg­ar lóð­irn­ar nr. 14 og 16 við Ástu-Sóllilju­götu, en þar er gerð til­laga um að í stað tveggja ein­býl­is­húsa komi fjög­urra íbúða tveggja hæða rað­hús, og hins­veg­ar lóð­irn­ar nr. 1 og 3 við Bergrún­ar­götu þar sem til­laga er gerð um að í stað tveggja ein­býl­is­húsa komi tvö tveggja hæða par­hús með að­komu ofan frá að efri hæð­inni.

Hamra­brekk­ur, frí­stunda­byggð
Til­lag­an er um breyt­ing­ar á skipu­lags­sskil­mál­um, einkum hvað varð­ar leyfi­lega há­marks­stærð húsa, þann­ig að á hverri lóð verði heim­ilt að byggja frí­stunda­hús ásamt sam­byggðri eða stak­stæðri geymslu, sam­tals allt að 130 m2. Einn­ig er gerð til­laga um há­marks­hæð húsa og breyt­ing­ar á ákvæð­um um þak­form.

Of­an­greind­ar til­lög­ur verða til sýn­is í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar Þver­holti 2, frá 12. apríl 2016 til og með 24. maí 2016, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær at­huga­semd­ir.

At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal senda þær til skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ, eigi síð­ar en 24. maí 2016.

7. apríl 2016,
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

 

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00