Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi frístundalóðar í landi Miðdals II.
Tillagan gerir ráð fyrir því að á lóðinni, sem hefur landnúmer 192804 og er um 1,1 ha að stærð, megi reisa tvö frístundahús, hvort um sig allt að 110 m2 að stærð auk 20 m2 geymsluhúss.
Tillöguuppdráttur með greinargerð verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 14. febrúar til 14. mars 2007, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar eigi síðar en 28. mars 2007. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
7. febrúar 2007
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar