Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi: Lynghóll, landnr. 125346.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Lynghóls, landnr. 125346. Breytingin felst í eftirfarandi:
Breytingin felur í sér að byggingareitur stækkar til norðurs. Stærð byggingareits fyrir breytingu er 732,4, stærð byggingarreits eftir breytingu verður 1.066 m². Hámarksstærð frístundahúss verður 130 m² í stað 70 m². Hámarksstærð áhaldahúss verður 70 m² í stað 20 m².
Hámarksbyggingamagn verður 200 m² í stað 90 m².
Ofangreind tillaga verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 21. febrúar 2018 til og með 6. apríl 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemd.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 6. apríl 2018.
21. febrúar 2018
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: