Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að Leiksvæði sem liggur vestan við göngustíg sem kemur frá Vefarastræti niður fyrir Sauðhól og niður fyrir Snæfríðargötu er færður austur fyrir göngustíginn og leiksvæði stækkað. Gildandi deiliskipulag var staðfest 13. júní 2014.
Tillagan verður til sýnis í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, frá 10. mars 2020 til og með 24. apríl 2020, svo þeir sem þess óska geta kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Uppdráttur eru einnig birtir á vef Mosfellsbæjar á slóðinni: mos.is/skipulagsauglysingar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær, eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 24. apríl 2020.
10. mars 2020
Fh. Skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar
kristinnp[hja]mos.is