Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að lóðinni Kvíslartungu 5 verði breytt úr því að vera fyrir eitt einbýli í að byggja megi parhús á lóðinni, við bætist íbúð 5a. Hvor íbúðareining skal hafa bílageymslu. Botnlangi lengist um 15 metra vegna aðkomu nýrrar íbúðar. Gildandi deiliskipulag var staðfest 28. júní 2006.
Tillagan verður til sýnis í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, frá 10. mars 2020 til og með 24. apríl 2020, svo þeir sem þess óska geta kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Uppdráttur eru einnig birtir á vef Mosfellsbæjar á slóðinni: mos.is/skipulagsauglysingar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær, eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 24. apríl 2020.
10. mars 2020
Fh. Skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar
kristinnp[hja]mos.is
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: