Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
24. febrúar 2020

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi, skv. 1. mgr. 43. gr. Skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Skipu­lag­ið tek­ur til lög­býl­is­in­ins Lund­ar í Mos­fells­dal milli Þing­valla­veg­ar og Köldu­vkís­l­ar L123710. Skipu­lags­svæð­ið er tæp­ir 10 ha. Inn­an svæð­is­ins er starf­rækt gróð­ur­hús. Svæð­ið er ,land­bún­að­ar­land‘ á að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030.

Breyt­ing­in fel­ur í sér til­færslu bygg­ing­ar­reita og sam­ein­ingu þeirra. Inn­an skipu­lags­ins má byggja tvö íbúð­ar­hús með bíl­skúr­um að há­marki sam­an­lagt 850 m2, gróð­ur­hús og tengda starf­semi há­marki 21.000 m2, smá­hýsi fyr­ir starfs­menn sam­an­lagt 600 m2 og til­rauna­gróð­ur­hús 2.500 m2.

Til­lag­an verð­ur til sýn­is í Þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, frá 24. fe­brú­ar 2020 til og með 10. apríl 2020, svo þeir sem þess óska geta kynnt sér til­lög­una og gert við hana at­huga­semd­ir. Til­lag­an er einn­ig birt á vef Mos­fells­bæj­ar á slóð­inni: mos.is/skipu­lagsauglys­ing­ar.

At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal senda þær til skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bær, eða í tölvu­pósti til und­ir­rit­aðs eigi síð­ar en 10. apríl 2020.

Fh. Skipu­lags­full­trúa Mos­fells­bæj­ar
Krist­inn Páls­son
krist­innp[hja]mos.is

 

 

 

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00