Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi: Leirvogstunga 47-49, tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi: Leirvogstunga 47-49, tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Um er að ræða breytingu vegna Leirvogstungu 47-49 (oddatölur). Einbýlishúsalóðirnar Leivogstungu nr. 47 og 49, húsgerð E-EB eru sameinaðar í eina fjögurra eininga raðhúsalóð, nr. 47, 49, 51 og 5,3 húsgerð R-IK.
Ofangreind tillaga verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 11. febrúar 2017 til og með 25. mars 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfells-bæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 25. mars 2017.
10. febrúar 2017,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Afnotareitir í Leirvogstunguhverfi samþykktir
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. júní 2023 að heimila leigu afnotareita í Leirvogstunguhverfi í samræmi við samþykkt skipulag.
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.