Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi: Laxatunga 93, tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi: Laxatunga 93, tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Breytingin nær til lóðarinnar að Laxatungu 93. Í breytingunni felst að í stað tveggja hæða einbýlishúss (E-II A) verði byggt einnar hæðar einbýlishús (E-IX). Að öðru leyti breytast skilmálar ekki.
Ofangreind tillaga verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 5. maí 2017 til og með 9. júní 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 9. júni 2017.
5. maí 2017,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: