Mosfellsbær auglýsir hér með breytingartillögu á samþykktum deiliskipulögum, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar með er kynningarmálum vegna breytingar hagað skv. 44. gr. um grenndarkynningar.
Breyting á deiliskipulagi við Fossatungu 2-6, parhús
Breytingu á deiliskipulagi Leirvogstungu, breytingin felst í að raðhús með þremur íbúðum er breytt í fjórar íbúðir.
Tillagan verður til sýnis á upplýsingatorgi Mosfellsbæjar, Þverholti 2, frá 21. ágúst til og með 25. september 2020, þeir sem þess óska geta kynnt sér þær og gert athugasemdir. Uppdrættir eru einnig birtir á vef Mosfellsbæjar á slóðinni: mos.is/skipulagsauglysingar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær, eða í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is eigi síðar en 25. september 2020.
21. ágúst 2020
Kristinn Pálsson
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi – Grenibyggð 2
Á afgreiðslufundi Skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 6. nóvember sl. var samþykkt að grenndarkynna skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Grenibyggðar 2, Mosfellsbæ.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi – Markholt 13
Grenndarkynning – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu, Sveinsstaðir L125058