Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
15. febrúar 2013

Að­al­skipu­lag tek­ur til alls sveit­ar­fé­lags­ins og fel­ur í sér stefnu­mörk­un bæj­ar­stjórn­ar varð­andi land­notk­un, byggða­þró­un, byggða­mynst­ur, sam­göngu- og þjón­ustu­kerfi og um­hverf­is­mál. Hér erum að ræða heild­ar­end­ur­skoð­un gild­andi að­al­skipu­lags, en tíma­bil þess var 2002-2024. At­huga­semda­frest­ur er til 2. apríl 2013.

Opna pdf-þéttbýlisuppdráttBæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar aug­lýs­ir hér með sam­kvæmt 31. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga nr. 105/2006  um um­hverf­is­mat áætl­ana til­lögu að að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 og til­heyr­andi um­hverf­is­skýrslu. Til­lag­an er sett fram í grein­ar­gerð, sem inni­held­ur einn­ig um­hverf­is­skýrsl­una, og á tveim­ur upp­drátt­um; þétt­býl­is- og sveit­ar­fé­lags­upp­drætti, og eru þessi gögn dag­sett 15. janú­ar 2013. Um er að ræða heild­ar­end­ur­skoð­un á gild­andi að­al­skipu­lagi 2002-2024.

Í til­lög­unni hef­ur ver­ið kom­ið til móts við at­huga­semd­ir og ábend­ing­ar sem Skipu­lags­stofn­un setti fram eft­ir at­hug­un skv. 30. gr. skipu­lagslaga.

Til­lag­an verð­ur til sýn­is hjá Þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, – í út­still­ing­ar­kassa á 1. hæð og í af­greiðslu á 2. hæð, –  frá og með 15. fe­brú­ar 2013 til og með 2. apríl 2013. Hún er einn­ig birt hér á heima­síðu bæj­ar­ins, sjá tengla hér neð­ar, og loks mun hún liggja frammi á sama tíma hjá Skipu­lags­stofn­un, Lauga­vegi 166, Reykja­vík, og á Bóka­safni Mos­fells­bæj­ar.

Á kynn­ing­ar­tím­an­um verð­ur enn­frem­ur hald­inn al­menn­ur borg­ar­a­fund­ur um til­lög­una og verð­ur hann aug­lýst­ur síð­ar.

Tengl­ar á til­lögu­gögn­in:
Grein­ar­gerð og um­hverf­is­skýrsla – pdf-skjal, 2,5 MB
Þétt­býl­is­upp­drátt­ur – pdf-skjal, 3,7 MB  –  jpg-skjal, 2,1 MB
Sveit­ar­fé­lags­upp­drátt­ur – pdf-skjal, 7,6 MB  –  jpg-skjal, 2,8 MB

Frest­ur til að gera at­huga­semd­ir við til­lög­una og/eða um­hverf­is­skýrsl­una er til og með 2. apríl 2013. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal þeim skilað til Skipu­lags­full­trúa Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ.

11. fe­brú­ar 2013
Finn­ur Birg­is­son
skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00