Mánudagskvöldið 26. júlí og aðfaranótt þriðjudags 27. júlí er stefnt á að malbika 800m kafla á Hringvegi milli Kjalarness og Hvalfjarðarganga, ef veður leyfir.
Veginum og Hvalfjarðargöngum verður lokað í báðar áttir og verður hjáleið um Hvalfjörð. Athugið að neyðarakstri verður hleypt í gegnum vinnusvæðið ef nauðsyn krefur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 22:00 til kl. 07:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.