Hin árlega þrettándabrenna Mosfellsbæjar verður haldin laugardaginn 4. janúar 2014. Samkvæmt dagatali ber þrettándann upp á mánudaginn 6. janúar en ákveðið hefur verið að halda þrettándann hátíðlega næstkomandi laugardag 4. janúar.
Brennan er stærsti viðburður í bænum á ári hverju þar sem þúsundir gesta leggja leið sína í Mosfellsbæ. Dagskráin verður vegleg að þessu sinni en fram koma Stormsveitin með Bigga Haralds, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar ásamt Grýlu, Leppalúða og þeirra hyski.
Blysför leggur af stað frá miðbæjartorgi kl. 18:00 og haldið að brennunni sem verður á sama stað og árlega, neðan Holtahverfis við Leirvoginn þar sem áramótabrennan var haldin.
Björgunarsveitin Kyndill verður með glæsilega flugeldasýningu.