Sumarfrístund verður í boði eftirfarandi daga í júní og ágúst: 9.-24. júní fyrir börn fædd 2015-2012 og 8.-19. ágúst fyrir börn fædd 2016-2013.
Sumarfrístund verður í boði eftirfarandi daga í júní og ágúst:
- 9. – 24. júní fyrir börn fædd 2015 – 2012
- 8. – 19. ágúst fyrir börn fædd 2016 – 2013
Mikilvægt er að þau börn sem sækja um að nýta sér sumarfrístund allan daginn komi með þrefalt nesti þar sem ekki verður boðið upp á hádegismat þessa daga.
Veittur er 20% systkinaafsláttur.
Greitt er samkvæmt gjaldskrá um viðbótarvistun í frístundaseljum.
Vakin er athygli á því að vetrarfrístund hefst 24. ágúst.
Síðasti skráningardagur er 1. maí. Eftir að skráning er staðfest er hún bindandi.