Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2025-2026 fer fram á Mínum síðum Mosfellsbæjar. Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2025 fer fram frá 1. mars til 21. mars.
Innritun skólaskyldra barna sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl.
Umsóknir barna með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrumsveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast fyrir 1. apríl inn á Mínum síðum.
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.
Nánari upplýsingar og aðstoð veita skrifstofur grunnskólana.
Skráning í vetrarfrístund og mötuneyti vegna skólaársins 2025-2026 fer fram síðar í vor.