Mosfellsbær vekur athygli á rétti fatlaðs fólks 18 ára og eldra með lögheimili í bænum til að sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks.
Markmið styrkjanna er að auðvelda fötluðu fólki að verða sér úti um þekkingu og reynslu og auka möguleika sína til virkrar þátttöku í samfélaginu. Heimilt er að veita styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluð fólki að skapa sér atvinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2017.
Tengt efni
Erna Sóley afreksíþróttamaður 2024
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar afhentur í Hlégarði
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar var afhentur í Hlégarði fimmtudaginn 27. júní.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir 12. júní 2024
Miðvikudaginn 12. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.