Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
Öll ungmenni á aldrinum 16-20 ára, (f. 2003, 2004, 2005 og 2006) með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er meðal annars að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann. Styrkurinn er fólginn í launum frá Mosfellsbæ og greitt í samræmi við önnur sumarstörf hjá Mosfellsbæ.
Sótt er um rafrænt á þjónustugátt Mosfellsbæjar.
Skilafrestur umsókna er til og með 2. mars 2023.
Sækja um á þjónustugátt:
Athygli er vakin á að unglingum á aldrinum 13-15 ára (f. 2007, 2008 og 2009) sem taka þátt í til dæmis landsliðsverkefnum og/eða verkefnum fyrir félög/félagasamtök á vinnutíma vinnuskóla verður gefinn sá möguleiki að sækja formlega um leyfi á launum á þeim tíma sem að verkefnið varir. Skilyrði er að viðkomandi verði skráður í vinnu í Vinnuskóla Mosfellsbæjar og skili þar lágmarks vinnuframlagi.
Tengt efni
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2023
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.
Fjárframlög til lista- og menningarstarfsemi 2023 - Hægt að sækja um til og með 1. mars
Menningar- og lýðræðisnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna listviðburða og menningarmála árið 2023.
Styrkir til efnilegra ungmenna í Mosfellsbæ 2023 - Umsóknarfrestur til 2. mars
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.