Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Regl­ur íþrótta- og tóm­stunda­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar vegna út­hlut­un­ar til efni­legra ung­menna sem leggja stund á íþrótt­ir, tóm­stund­ir og list­ir.

1. gr.

Ung­menni á aldr­in­um 16 til 20 ára, með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ, sem skara fram úr og hafa sýnt sér­staka hæfi­leika á sínu sviði geta sótt um styrk til íþrótta- og tóm­stunda­nefnd­ar að und­an­geng­inni aug­lýs­ingu.

2. gr.

Markmið Mos­fells­bæj­ar með styrkn­um er að koma til móts við þau ung­menni sem geta ekki með sama hætti og jafn­aldr­ar þeirra unn­ið sum­ar­vinnu hjá Mos­fells­bæ vegna mik­ils álags, skipu­lags eða ann­arra sann­ar­legra þátta sem teng­ist íþrótt þeirra, tóm­stund­um eða list­um. Þann­ig er það vilji bæj­ar­ins að þau geti sam­hliða not­ið sum­ar­launa líkt og jafn­aldr­ar þeirra sbr ákvæði.

Styrkn­um er ekki ætlað að mæta út­gjöld­um né er um að ræða verð­launafé fyr­ir unn­in eða óunn­in af­rek. Styrk­hafa er heim­ilt að vera í laun­aðri vinnu nefnd­an tíma, en þá skerð­ist styrk­ur­inn í hlut­falli við starfs­hlut­fall.

3. gr.

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd hef­ur eft­ir­far­andi við­mið þeg­ar styrkj­um er út­hlutað:

  • Með­mæli þjálf­ara, kenn­ara eða ann­ars leið­bein­anda um­sækj­anda sem fylgja skulu með um­sókn­inni. Þar skulu koma fram upp­lýs­ing­ar um ástund­un, hæfi­leika, virkni og fram­komu um­sækj­and­ans.
  • Fram skulu koma upp­lýs­ing­ar frá um­sækj­anda hygg­ist hann/hún þiggja laun­aða vinnu á styrktím­an­um. Sé um slíkt að ræða þarf að til­greina starfs­hlut­falli og óska þá eft­ir hluta­styrk.
  • Gæta skal jafn­ræð­is við val á styrk­þeg­um bæði hvað varð­ar kyn­ferði sem og milli list­greina og íþrótta- og tóm­stunda­greina. Þessa jafn­ræð­is skal gætt inn­byrð­is við hverja út­hlut­un sem og á milli ára.
  • Ár­lega veit­ir Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd styrki til 3-5 ein­stak­linga, breyti­legt milli ára þar sem kostn­að­ur fer eft­ir aldri styrk­þega og hvort er um hlut­falls­greiðsl­ur að ræða.

4. gr.

Ung­menni fá greidd laun í sam­ræmi við ung­mennataxta bæj­ar­fé­lags­ins hverju sinni.

5. gr.

Aug­lýs­ing um styrk­veit­ingu skal birta fyr­ir lok mars ár hvert. Í henni koma fram við­mið íþrótta- og tóm­stunda­nefnd­ar og önn­ur skil­yrði. Um­sókn­areyðu­blöð er unnt að nálg­ast á vef bæj­ar­ins og skal skila þeim á ra­f­rænu formi. íþrótta- og tóm­stunda­nefnd svar­ar um­sókn­um hvers árs fyr­ir lok apríl.

6. gr.

Íbú­ar eða stofn­an­ir bæj­ar­ins skulu með ein­hverj­um hætti njóta afrakst­urs af verk­um styrk­þega þeg­ar það á við og skal það gert í sam­ráði við emb­ætt­is­menn Mos­fells­bæj­ar.

7. gr.

Styrk­þegi skal út­fylla sér­staka skilagrein og skila henni til íþrótta- og tóm­stunda­nefnd­ar að afloknu styrkt­ar­tíma­bili. Hann skal þar gera grein fyr­ir nýt­ingu tím­ans sem var­ið er í það verk­efni sem styrkt er.

Sam­þykkt 06.03.2019 á 734. fundi bæj­ar­stjórn­ar Mos­fells­bæj­ar.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00