Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Með þátt­tök­u í Stóra plokkdeginum vill Mos­fells­bær taka virk­an þátt í þessu metn­að­ar­fulla um­hverf­isátaki sem fer fram und­ir merkj­um fé­lags­skap­ar­ins Plokk á Ís­landi.

Mos­fells­bær hvet­ur íbúa og starfs­fólk fyr­ir­tækja í Mos­fells­bæ til að taka virk­an þátt í deg­in­um og að plokka rusl í sín­um hverf­um og á opn­um svæð­um.

Íbú­ar geta nálg­ast rusla­poka fyr­ir plokk­ið fyr­ir fram­an Bóka­safn Mos­fells­bæj­ar í Kjarna og í and­dyri íþróttamið­stöðv­anna að Varmá og Lága­felli frá mið­viku­deg­in­um 24. apríl 2024. Einn­ig er hægt að fá ruslat­ín­ur að láni á bóka­safn­inu með bóka­safnskorti í allt að tvær vik­ur.

Eft­ir Stóra plokk­dag­inn mun starfs­fólk þjón­ustu­stöðv­ar keyra um og sækja rusl en mik­il­vægt er að setja rusla­pok­ana á sýni­lega staði.

Mos­fells­bær hvet­ur plokk­ara til að nota hanska og gæta fyllsta ör­ygg­is við um­ferða­ræð­ar.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00