Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Mos­fells­bær tek­ur þátt í Stóra plokk­deg­in­um, laug­ar­dag­inn 24. apríl.

Með þátt­tök­unni vill Mos­fells­bær taka virk­an þátt í þessu metn­að­ar­fulla um­hverf­isátaki sem fer fram und­ir merkj­um fé­lags­skap­ar­ins Plokk á Ís­landi.

Mos­fells­bær hvet­ur íbúa og starfs­fólk fyr­ir­tækja í Mos­fells­bæ til að taka virk­an þátt í deg­in­um og að plokka rusl í sín­um hverf­um og á opn­um svæð­um.

Íbú­ar geta nálg­ast rusla­poka fyr­ir plokk­ið á Upp­lýs­inga­torgi Mos­fells­bæj­ar í Kjarna, Þver­holti 2, fyr­ir fram­an bóka­safn­ið, á milli kl. 9:00-18:00, laug­ar­dag­inn 24. apríl.

Á grennd­argáma­stöðv­um við Dælu­stöðv­arveg, Langa­tanga, Bo­ga­tanga og Skeið­holt er að finna gáma fyr­ir flokkað rusl, plast og gler, auk þess sem end­ur­vinnslu­stöð Sorpu við Blíðu­bakka er opin alla helg­ina og tek­ur á móti fjölda end­ur­vinnslu­flokka.

Mánu­dag­inn 26. apríl munu starfs­menn Þjón­ustu­stöðv­ar Mos­fells­bæj­ar sækja þá poka sem plokk­ar­ar setja við lóð­ar­mörk. Plokk­ar­ar eru beðn­ir um að láta vita hvar sækja þarf slíka poka í gegn­um Ábend­inga­kerfi Mos­fells­bæj­ar.

Einn­ig er hægt að senda tölvu­póst á mos@mos.is eða hringja í þjón­ustu­ver Mos­fells­bæj­ar í síma 525-6700.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00