Stóra upplestrarkeppnin verður haldin í 20. sinn í FMOS þriðjudaginn 20. mars kl. 17:30.
Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr grunnskólum Mosfellsbæjar, lesa brot úr skáldverki og flytja ljóð. Dómnefnd velur þrjá bestu upplesarana og veitir verðlaun. Hljóðfæraleikarar frá Listaskóla Mosfellsbæjar og skólakór Varmárskóla sjá um tónlistarflutning.
Skáld keppninnar að þessu sinni eru Ólafur Jóhann Sigurðsson og Sigrún Eldjárn.
Efnt var til samkeppni um myndskreytingu dagskrár og verður veitt viðurkenning fyrir það á hátíðinni.
Öll velkomin.
Tengt efni
Nóg um að vera í Mosfellsbæ í sumar
Opnað fyrir nýtingu frístundaávísana allt árið
Barnadjasshátíð í Mosfellsbæ 20. - 23. júní 2024
Dagana 20. – 23. júní verður hátíðin Barnadjass í Mosó haldin í annað sinn.