Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk fór fram í hátíðarsal Varmárskóla fimmtudagskvöldið 10. mars.
10 nemendur úr grunnskólum Mosfellsbæjar, Lágafellsskóla og Varmárskóla kepptu til úrslita.
Úrslitin urðu þannig að Sigríður Ragnarsdóttir, Varmárskóla, varð í fyrsta sæti, Rebekka Sunna Sveinsdóttir, Varmárskóla, varð í öðru sæti og Harpa Dís Hákonardóttir, Lágafellskóla, varð í þriðja sæti.
Margt var um manninn á þessu hátíðlega kvöldi og fengu gestir að heyra keppendur lesa brot úr sögunni Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason og ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur. Auk þess lásu keppendur ljóð sem þeir völdu sjálfir. Skólakór Varmárskóla söng þrjú lög auk þess sem nemendur úr Listaskóla Mosfellsbæjar fluttu lifandi tónlist.
Tengt efni
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrkir efnileg ungmenni
Á dögunum veitti íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og efnilegra ungmenna.
Vel heppnað barna- og ungmennaþing
Barna- og ungmennaþing í Mosfellsbæ var haldið í Hlégarði 13. apríl þar sem um 90 nemendur í 5. – 10. bekk í Mosfellsbæ tóku þátt.
Barna- og ungmennaþing 13. apríl 2023 - Skráning stendur yfir
Barna- og ungmennaþing verður haldið í fyrsta sinn í Mosfellsbæ þann 13. apríl 2023.