Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr grunnskólum Mosfellsbæjar, lesa brot úr skáldverki og flytja ljóð. Dómnefnd velur þrjá bestu upplesarana og veitir verðlaun. Hljóðfæraleikarar frá Listaskóla Mosfellsbæjar og skólakór Varmárskóla spila og syngja fyrir gesti. Skáld keppninnar að þessu sinni eru Erla (Guðfinna Þorsteinsdóttir) og Þorgrímur Þráinsson.
Efnt var til samkeppni um myndskreytingu dagskrár og verður veitt viðurkenning fyrir það á hátíðinni.
Öll velkomin.
Tengt efni
Frístundaávísun hækkar
Þann 15. ágúst hófst nýtt tímabil frístundaávísunar í Mosfellsbæ.
Líf og fjör í Mosó í allt sumar
Það er nóg um að vera í Mosfellsbæ í sumar.
Barnadjasshátíð í Mosfellsbæ sú fyrsta sinnar tegundar
Dagana 22.-25. júní verður hátíðin Barnadjass í Mosó haldin í fyrsta skipti.