Án vafa má segja að töfrar Mosfellsbæjar sé þessi mikla nánd við náttúru og heilbrigt líferni sem bæði er hægt að njóta og stunda.
Í Mosfellsbæ má finna ýmsa skemmtilega markaði sem flestir taka til starfa yfir sumartímann. Til að mynda gómsæta grænmetismarkaði, spennandi vinnustofur og handverksmarkaði.
Af grænmeti í boði má nefna ýmsar salattegundir á borð við klettasalat og auk þess brokkólí, gulrætur, spínat, svartkál og vorlauk auk þess er boðið upp á rósir frá Dalsgarði, landnámshænur, hanaegg úr Kjósinni, svonefnd af því að haninn fær að vera með hænunum úti í hænsnakofa, heimagerða pestósósu og íslensk grös og jurtir sem hefur verið tínt, þurrkað og unnið.
Tengt efni
Tendrun jólatrés á Miðbæjartorgi vel sótt
Um árabil hefur tendrun ljósa á jólatrénu á Miðbæjartorgi markað upphaf jólahalds í Mosfellsbæ.
Vel heppnað Bókmenntahlaðborð
Húsfyllir á opnun jólalistaverkamarkaðar í Listasal Mosfellsbæjar