Húsráðendur eru hvattir til að merkja húsin með húsnúmerum og moka frá sorptunnum ef þannig viðrar um jólin.
- Grátunna, almennt sorp: 23./24. desember og 2./3. janúar og 11./13. janúar.
- Blátunna, pappír: 30./31. desember og 17./20. janúar.
Á vef Sorpu má sjá afgreiðslutíma yfir jól og áramót sem og finna góðar upplýsingar um hvað má fara í tunnuna og hvað fer til urðunar og í flokkun hjá Sorpu. Mandarínukassar, jólaseríur eða stjörnuljós allt á sinn stað í flokkun. Þess má geta að jólapappír má fara í bláu tunnuna. Hugum að okkar nærumhverfi og verum vistvæn.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar bæjarbúum gleðilegra jóla!