Yfir jól og áramót fellur oft til meira sorp frá heimilum en á öðrum tíma ársins.
Það getur því verið ágætt að vita hvenær tunnurnar eru tæmdar. Bláa tunnan verður tæmd í Mosfellsbæ 20. og 21. desember sem og 29. og 30. desember. Almennt sorp verður hreinsað 22. desember og 23. desember. Eftir áramót verður almenna sorpið svo hirt dagana 2. og 3. janúar. Þess má geta að jólapappír má fara í bláu tunnuna.
Við þetta má bæta að búið er að birta sorphirðudagatal blá- og grátunnu fyrir árið 2018. Sorphirðuverktaki tæmir tunnurnar á tveimur virkum dögum og er því miðað við að sorphirðu eigi að vera lokið síðari daginn.
Tengt efni
Afhending nýrra tunna heldur áfram 8. og 9. júní í Arnartanga og Holtahverfi
Þá er komið að dreifingu á tunnum í viku 23.
Afhending nýrra tunna heldur áfram 30. og 31. maí í Hlíða- og Tangahverfi
Íbúar í eftirtöldum götum fá afhentar nýjar tunnur fyrir nýja úrgangsflokkunarkerfið samkvæmt sorphirðudagatali okkar þriðjudaginn 30. og miðvikudaginn 31. maí.
Íbúar í Hamratúni 6 fengu fyrstu tvískiptu tunnuna í Mosfellsbæ
Hjónin Sigríður Wöhler og Halldór Þórarinsson sem búa í Hamratúni 6 voru fyrstu íbúarnir til að taka við nýrri tvískiptri tunnu fyrir matarleifar og blandaðan úrgang sem er hluti af nýja úrgangsflokkunarkerfinu.