Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 73/1997 og 7. gr. laga nr. 105/2006 tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi Skarhólabrautar að Desjarmýri, sem samþykkt var 12. mars 2008.
Breytingarnar tengjast áformum um slökkvi- og lögreglustöð við Skarhólabraut, og felast einkum í fjölgun akreina á kafla vestast og tveimur nýjum tengingum við götuna.
Umhverfisskýrsla skv. lögum nr. 105/2006 er hluti af greinargerð á uppdrætti.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 11. janúar 2010 til og með 22. febrúar 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 22. febrúar 2010. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
5. janúar 2010
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Breyting á deiliskipulagi Helgafellshverfis: Ný grenndarstöð við Vefarastræti
Grenndarkynning á umsókn um byggingaleyfi – Hjarðarland 1
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 28. júlí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Hjarðarlands 1, Mosfellsbæ.
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leirvogstungu – Laxatunga 43
Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Laxatungu 43.