Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Weidong heimsótti Krikaskóla á öskudaginn.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri og Gunnhildur Sæmundsdóttir frá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar voru einnig viðstödd móttökuna. Mikil gleði var hjá krökkunum og skemmtileg stemmning.
Börn í 3. og 4. bekk hafa verið að læra um Kína og kínversku áramótin á síðustu vikum. Þau og myndlistakennari skólans, Haraldur Sigmundsson, buðu sendiherranum í heimsókn og þáði hann boðið. Mikil gleði var hjá krökkunum og skemmtileg stemmning.
Sendiherrann tók þátt í drekaskrúðgöngu og smiðjum með kínverskum tengingum. Eins sló hann köttinn úr tunnunni með börnunum.
Sendiherrann gaf skólanum bækur fyrir börnin og sérstakt kínverskt tákn fyrir hamingju og frið sem hægt er að hengja upp og laða þannig til okkar hamingjuna.