Að venju veitir Rótarýklúbbur Mosfellssveitar fjórum nemendum í 4. bekk Lágafellsskóla viðurkenningu fyrir hæfni í samskiptum.
Viðurkenningarnar eru afhentar með viðhöfn á skólaslitum.
Í ár hlutu Bessi Ólafsson, Gabríel Darri Eiríksson, Emma Sigurðardóttir og María Rut Gunnlaugsdóttir viðurkenningu frá Rótarýklúbbnum.