Föstudaginn 1. nóvember s.l. hélt leikskólinn Hulduberg upp á 14 ára afmæli leikskólans.
Af því tilefni fengu börnin að ráða klæðnaði þennan dag og voru þau ýmist í búningum, náttfötum, sparifötum eða leikskólafötum. Einnig var rugldagur en þá máttu börnin fara á milli deilda/svæða og velja sér leikefni og fengu þeir sem vildu andlitsmálingu. Helgi kom líka með gítarinn og söng með börnunum eins og alltaf á föstudögum og í nónhressingu var afmæliskaka á borðum. Börnin voru ánægð með daginn og öll skemmtu sér vel.
Tengt efni
Leikskólabörn á Huldubergi færðu strætó í jólabúning
Börnin á leikskólanum Huldubergi í Mosfellsbæ fengu óvænta heimsókn í dag, þegar jólasveinar komu til þeirra í strætó og fengu þau til að hjálpa sér að skreyta vagninn að innan.
Leikskólinn Hulduberg 10 ára
Leikskólinn Hulduberg heldur upp á 10 ára afmæli sitt í dag, 2. nóvember.