Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
22. apríl 2020

Árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2019 var lagð­ur fram á fundi bæj­ar­ráðs í dag, mið­viku­dag­inn 22. apríl, og sýn­ir að Mos­fells­bær stend­ur sem fyrr styrk­um fót­um.

Rekstr­arnið­ur­staða árs­ins er já­kvæð um 416 millj­ón­ir sem er um 26 millj­óna betri af­koma en gert var ráð fyr­ir í fjár­hags­áætlun árs­ins. Það skýrist af aukn­um tekj­um vegna hærri launa­tekna íbúa, meiri um­svif­um í sveit­ar­fé­lag­inu og lægri fjár­magns­kostn­aði en ráð var gert fyr­ir.

Helstu töl­ur um rekst­ur árs­ins 2019

Tekj­ur árs­ins námu alls um 12.422 millj­ón­um, launa­kostn­að­ur 5.577 millj­ón­um og ann­ar rekstr­ar­kostn­að­ur var 5.418 millj­ón­ir og nem­ur fram­legð því 1.427 millj­ón­um. Veltufé frá rekstri er 1.239 millj­ón­ir eða 10% af tekj­um. Eig­ið fé í árslok nam því 7.197 millj­ón­um og eig­in­fjár­hlut­fall­ið er 33,9%. Skulda­við­mið er 84,7% og því vel inn­an þess 150% há­marks sem kveð­ið er á um í lög­um. Skuldastaða sveit­ar­fé­lags­ins er í takti við þá upp­bygg­ingu sem átt hef­ur sér stað á und­an­förn­um árum. Sú upp­bygg­ing er í fullu sam­ræmi við fram­tíð­ar­sýn sveit­ar­fé­lags­ins um að vera fjöl­skyldu­vænt, heilsu­efl­andi og fram­sæk­ið bæj­ar­fé­lag sem set­ur um­hverf­ið í önd­vegi og hef­ur þarf­ir og vel­ferð íbúa að leið­ar­ljósi.

Íbú­um í Mos­fells­bæ fjölg­aði um 640 á ár­inu 2019 og skil­virk­ur rekst­ur og sterk fjár­hags­staða auð­veld­ar sam­fé­lag­inu að taka vel á móti nýj­um íbú­um og jafn­framt tryggja íbú­um framúrsk­ar­andi þjón­ustu.

Fram­kvæmd­ir á veg­um Mos­fells­bæj­ar á ár­inu 2020 verða í sögu­legu há­marki enda sveit­ar­fé­lag­ið í örum vexti. Sam­tals verð­ur fram­kvæmt fyr­ir um þrjá millj­arða króna og má þar nefna bygg­ingu Helga­fells­skóla, upp­bygg­ing íþrótta­mann­virkja, end­ur­bæt­ur á skóla­hús­næði auk gatna­fram­kvæmda svo nokk­uð sé nefnt.

Íbú­ar Mos­fells­bæj­ar voru 12.069 um síð­ustu ára­mót og nem­ur fjölg­un­in 5,6% á milli ára sem er meiri fjölg­un en áætlan­ir gerðu ráð fyr­ir. Mos­fells­bær er sjö­unda fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins og þar störf­uðu 784 starfs­menn í 636 stöðu­gild­um í árslok 2019.

Ábyrg­ur rekst­ur mála­flokka

Rekst­ur mála­flokka gekk vel og er í ágætu sam­ræmi við fjár­hags­áætlun. Rekstr­ar­gjöld án af­skrifta og fjár­magnsliða námu 9.626 millj­ón­um en sam­kvæmt fjár­hags­áætlun var gert ráð fyr­ir að verja 9.345 millj­ón­um til rekst­urs mála­flokka.

Fræðslu­mál eru sem fyrr lang­stærsti mála­flokk­ur­inn en til hans var var­ið 5.284 millj­ón­um eða 52,77% skatt­tekna. Til fé­lags­þjón­ustu var veitt 1.953 millj­ón­um og eru þar með­talin fram­lög vegna mál­efna fatl­aðs fólks. Loks eru íþrótta- og tóm­stunda­mál þriðja um­fangs­mesta verk­efni bæj­ar­ins og til þeirra var ráð­stafað um 1.070 millj­ón­um. Til fræðslu-, fé­lags­þjón­ustu og íþrótta- og tóm­stunda­mála er því var­ið um 83% skatt­tekna Mos­fells­bæj­ar.

Árs­reikn­ing­ur­inn verð­ur tek­inn til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn þann 29. apríl 2020 og gert er ráð fyr­ir því að seinni um­ræða í bæj­ar­stjórn fari fram þann 13. maí.

Har­ald­ur Sverris­son, bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar:

“Við hjá Mos­fells­bæ vilj­um vera til fyr­ir­mynd­ar varð­andi rekst­ur og þró­un starf­sem­inn­ar þann­ig að íbú­ar og starfs­menn séu á hverj­um tíma með­vit­að­ir um gæði þjón­ust­unn­ar og kostn­að við að veita hana. Sveit­ar­fé­lag­ið er rek­ið af ábyrgð með áherslu á kom­andi kyn­slóð­ir og árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2019 dreg­ur að mínu mati of­an­greind­ar áhersl­ur vel fram.

Rekst­ur og starf­semi sveit­ar­fé­lags­ins hef­ur geng­ið vel á umliðn­um árum sem hef­ur gert okk­ur kleift að byggja und­ir fram­tíð­ina. Fólk hef­ur streymt til Mos­fells­bæj­ar og íbú­um fjölgað um 2.600 manns frá árs­byrj­un 2017.

Skil­virk­ur rekst­ur og sterk fjár­hags­staða auð­veld­ar sam­fé­lag­inu að taka vel á móti nýj­um íbú­um og þjón­ust­an er vel met­in af íbú­um sam­kvæmt nið­ur­stöð­um þjón­ustu­könn­un­ar Gallup þar sem við röð­um okk­ur á verð­launap­all.

Rekstr­ar­ár­ang­ur síð­ustu ára þar sem sveit­ar­fé­lag­ið hef­ur ver­ið rek­ið með góð­um af­gangi er nú hluti af getu Mos­fells­bæj­ar til að taka á móti þeim mótvindi sem rík­ir vegna nei­kvæðra efna­hags­legra áhrifa af Covid-19 far­aldr­in­um.

Sem fyrr vil ég nota þetta til­efni til að þakka starfs­mönn­um Mos­fells­bæj­ar, kjörn­um full­trú­um og nefnd­ar­fólki fyr­ir þeirra þátt í þess­ari góðu rekstr­arnið­ur­stöðu hjá Mos­fells­bæ og brýna okk­ur til góðra verka á næstu miss­er­um.“

Nán­ari upp­lýs­ing­ar veita:
Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri í síma 525-6700 og Arn­ar Jóns­son, for­stöðu­mað­ur þjón­ustu- og sam­skipta­deild­ar í síma 840-1244 eða í gegn­um net­fang­ið arn­ar@mos.is.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00