Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
7. desember 2023

Í fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar sem var lögð fram til síð­ari um­ræðu í bæj­ar­stjórn, þann 6. des­em­ber, er lögð áhersla á ábyrg­an rekst­ur sam­hliða mik­illi upp­bygg­ingu inn­viða, háu þjón­ustu­stigi og lág­um gjöld­um til barna­fjöl­skyldna.

  • Af­gang­ur verð­ur af rekstri A- og B- hluta, 969 m.kr.
  • Ný­fram­kvæmd­ir árs­ins 2024 eru áætl­að­ar 5,1 millj­arð­ur kr.
  • Veltufé frá rekstri verð­ur já­kvætt um 2.052 m.kr. eða um 9,5% af heild­ar­tekj­um.
  • Tekj­ur af bygg­inga­rétti áætl­að­ar 800 m.kr.
  • Álagn­ing fast­eigna­skatts A lækk­ar til að koma til móts við hækk­un fast­eigna­mats.
  • Álagn­ingar­pró­senta fast­eigna­skatts at­vinnu­hús­næð­is lækk­ar.
  • Gert er ráð fyr­ir að álagn­ing­ar­hlut­fall út­svars verði óbreytt eða 14,74% í sam­ræmi við lög­bundna heim­ild sveit­ar­fé­laga.
  • Hækk­un á gjald­skrám verð­ur að jafn­aði 7,5% til sam­ræm­is við breyt­ing­ar á verð­lagi.
  • Gert er ráð fyr­ir að íbú­ar verði um 13.753 í byrj­un árs 2024 og er ætluð íbúa­fjölg­un 2,4%.
  • Áætlun ger­ir ráð fyr­ir að skulda­við­mið 2024 verði 99,5%.

„Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar end­ur­spegl­ar mik­inn metn­að í upp­bygg­ingu inn­viða sam­hliða því að leggja áherslu á hátt þjón­ustust­ig og lægstu gjöld­in á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þeg­ar kem­ur að barna­fjöl­skyld­um“, seg­ir Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri. „Rekst­ur­inn er traust­ur og við áætl­um tæp­an milljarð í af­gang á næsta ári“.

Fjár­fest­ing og end­ur­nýj­un mann­virkja

Alls er gert ráð fyr­ir ný­fram­kvæmd­um upp á 5,1 milljarð króna og við­halds­fram­kvæmd­um upp á 258 m.kr. Stærstu ein­staka fram­kvæmd­irn­ar á næsta ári eru bygg­ing leik­skóla í Helga­fells­hverfi, nýj­ar inn­rétt­ing­ar í íþrótta­hús við Helga­fells­skóla og end­ur­bygg­ing að­al­vall­ar við Varmá. Þá er gert ráð fyr­ir upp­bygg­ingu inn­viða í nýju 89 þús­und fer­metra versl­un­ar-, þjón­ustu- og at­hafna­svæð­is Korpu­túns við Kor­p­úlfs­staða­veg sunn­an Blikastaða. Áform­að er að fyrsti áfangi nýrra gatna og veitna við at­vinnusvæð­ið Korputún verði boð­inn út í byrj­un næsta árs. Fram­kvæmd­ir við nýja íbúa­byggð í Helga­fellslandi verða áfram eitt af stóru upp­bygg­ing­ar­verk­efn­um kom­andi árs.

Hóf­sam­ar gjald­skrár­hækk­an­ir og góð þjón­usta við börn og fjöl­skyld­ur

Gjald­skrár­hækk­an­ir eru mjög hóf­sam­ar og hækka ekki um­fram verð­lag. Þann­ig verða gjald­skrár Mos­fells­bæj­ar áfram með þeim lægstu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í leik­skól­um og fæð­is­gjaldi í leik- og grunn­skól­um. Þá er gert ráð fyr­ir að börn fædd 1. ág­úst 2023 eða fyrr kom­ist inn í leik­skóla haust­ið 2024. Bær­inn mun enn frem­ur greiða nið­ur dag­vist­un hjá dag­for­eldr­um þann­ig að for­eldr­ar greiði jafn­hátt gjald hjá dag­for­eldr­um og á leik­skól­um til að jafna að­stæð­ur fjöl­skyldna. Áhersla verð­ur á inn­leið­ingu far­sæld­ar­laga og að styrkja Mos­fells­bæ enn frek­ar sem Barn­vænt sveit­ar­fé­lag. Þá verð­ur sett­ur auk­inn kraft­ur í inn­leið­ingu á nýrri mennta­stefnu og efl­ingu upp­lýs­inga­tækni í skól­um.

Um­bæt­ur í þjón­ustu og sta­fræn veg­ferð

Þjón­usta við íbúa Mos­fells­bæj­ar er sett í forg­ang með aukn­um fjár­fest­ing­um í sta­f­rænni umbreyt­ingu, gerð þjón­ustu­stefnu og fleiri um­bóta­til­lög­um tengd­um rekstri og stjórn­sýslu. Mos­fells­bær hef­ur þátt­töku í til­rauna­verk­efn­inu Gott að eldast sem fel­ur í sér að sam­þætta þjón­ustu heima­hjúkr­un­ar og stuðn­ings­þjón­ustu. Einn­ig verða fyrstu skref­in í inn­leið­ingu á vel­ferð­ar­tækni tekin þar sem tækni­lausn­ir eru nýtt­ar til að auka þjón­ustu við aldr­aða.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00