Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2019.
Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf að jafnréttismálum í samræmi við jafnréttisáætlun Mosfellsbæjar.
Til að eiga möguleika á að hljóta jafnréttisviðurkenningu Mosfellsbæjar árið 2019, þarf:
- Einstaklingur að hafa skarað framúr í vinnu að jafnréttismálum.
- Fyrirtæki, stofnun eða félag að hafa: – Sérstaka stefnu eða áætlun í jafnréttismálum.
- Unnið í því að afnema staðalímyndir kynjanna.
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla.
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið- eða kynferðislega áreitni á vinnustað.
- Veitt starfsmönnum fræðslu um jafnréttismál.
Útnefning lýðræðis- og mannréttindanefndar verður kynnt á Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar, þann 19. september 2019.
Tengt efni
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023
Velferðarnefnd auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023.
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar 22. september 2022
Haldið upp á daginn í Hlégarði kl. 15:00 – 17:00.
Jafnréttisviðurkenning Mosfellsbæjar 2022 - Hægt að tilnefna til og með 4. september
Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2022.