Opnir nefndarfundir Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar verða haldnir miðvikudaginn 14. október og fimmtudaginn 15. október, í samræmi við Lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar.
Á þessa tvo fundi mæta forsvarsmenn íþrótta- og tómstundafélaga í Mosfellsbæ og fara yfir og kynna störf sín, áherslur og væntingar inn í næsta starfsár.
Skipulag fundanna er á þessa leið:
Miðvikudagur 14. október
Bæjarskrifstofur Kjarna, Þverholt 2, 2. hæð
- 17:15 Moto Mos
- 17:45 Hestamannafélagið Hörður
- 18:30 Skátafélagið Mosverjar
- 19:15 Björgunarsveitin Kyndill
Fimmtudagur 15. október
Bæjarskrifstofur Kjarna, Þverholt 2, 2. hæð
- 17:15 Öspin / Hvíti Riddarinn / Skíðadeild KR
- 19-20:00 UMFAfturelding