Fimmtudaginn 11. maí heldur umhverfisnefnd Mosfellsbæjar opinn fund um sjálfbæra þróun og umhverfismál í Mosfellsbæ.
Fundurinn verður haldinn í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ kl. 17:00 – 18:30.
- Andri Snær Magnason rithöfundur mun halda erindi um umhverfismál og framtíðina.
- Lúðvík E. Gústafsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga mun halda erindi um ný heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Að erindum loknum verða almennar fyrirspurnir og umræður um fundarefnið. Nefndarfólk í umhverfisnefnd, starfsmenn nefndarinnar og fyrirlesarar sitja fyrir svörum.
Allt áhugafólk er hvatt til að mæta.
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Tengt efni
Stóri plokkdagurinn framundan
Stóri plokkdagurinn er sunnudaginn 28. apríl 2024.
Stóri plokkdagurinn 28. apríl 2024
Með þátttöku í Stóra plokkdeginum vill Mosfellsbær taka virkan þátt í þessu metnaðarfulla umhverfisátaki sem fer fram undir merkjum félagsskaparins Plokk á Íslandi.
Hætta á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu
Vegna þurrka undanfarið og veðurspár sem er í gildi fyrir næstu daga telur Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hættu á gróðureldum vera til staðar á höfuðborgarsvæðinu.