Opnir nefndarfundir Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar verða haldnir 14. og 15. október, í samræmi við Lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar.
Á þessa tvo fundi mæta forsvarsmenn íþrótta- og tómstundafélaga í Mosfellsbæ og fara yfir og kynna störf sín, áherslur og væntingar inn í næsta starfsár.
Fundirnir fara fram á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð.
14. október
- 17:15 Moto Mos
- 17:45 Hestamannafélagið Hörður
- 18:30 Skátafélagið Mosverjar
- 19:15 Björgunarsveitin Kyndill
15. október
- 17:15 Öspin /Hvíti Riddarinn / skíðadeild KR.
- 19-20:00 UMFAfturelding