Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.
Matjurtagarðar bæjarins eru staðsettir austan við Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa verið. Aðkoma að görðunum er að norðanverðu frá tjaldsvæðinu við eldri deild Varmárskóla. Aðgengi að vatni og kaffiskúr er við garðana.
- Leiguverð fyrir matjurtagarða er 2.500 kr. fyrir 50 fm garð
- Garðar verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 15. maí nk
Umsóknir skulu sendar á netfangið: tjonustustod[hja]mos.is.
Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ möguleika á að fá leigða matjurtagarða á vegum Reykjavíkurborgar í Skammadal. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér um útleiguna og geta áhugasamir sent tölvupóst á netfangið matjurtagardar[hja]reykjavik.is og látið skrá sig á lista með ósk um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé íbúi í Mosfellsbæ.
Tengt efni
Trjágróður klipptur og grisjaður
Garðyrkjudeild ásamt verktökum vinnur að því að grisja og klippa á öllum opnum svæðum bæjarins þessa dagana og mun sú vinna standa fram á vorið.
Fuglahús fyrir veturinn
Starfsfólk garðyrkju vinnur að því þessa dagana að koma niður endurnýttum trjádrumbum með áföstum smáfuglahúsum á nokkrum leikvöllum bæjarins.
Litli Skógur verður fallegur áningarstaður
Síðastliðinn vetur hófst grisjun og hreinsun á trjám og gróðri í Litla Skógi.