Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.
Garðar verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 18. maí nk.
Matjurtagarðar bæjarins verða staðsettir austan við Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa verið. Aðkoma að görðunum verður að norðanverðu frá tjaldsvæðinu við eldri deild Varmárskóla. Aðgengi að vatni og kaffiskúr verður við garðana.
- Leiguverð fyrir matjurtagarða er óbreytt, eða 2.500 kr. fyrir 50 fm garð.
- Tekið er við umsóknum á netfangið tjonustustod@mos.is.
- Garðar verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 18. maí nk.
Staðsetningu garða og fyrirkomulag má sjá á meðfylgjandi korti.
Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ möguleika á að fá leigða matjurtagarða á vegum Reykjavíkurborgar í Skammadal. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér um útleiguna og geta áhugasamir sett sig í samband við Þóru Jónasdóttur umsjónarmann matjurtagarða í Reykjavík í síma 411-1111, eða í netfangið matjurtagardar@reykjavik.is, og látið skrá sig á lista með ósk um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé íbúi í Mosfellsbæ.
Tengt efni
Trjágróður klipptur og grisjaður
Garðyrkjudeild ásamt verktökum vinnur að því að grisja og klippa á öllum opnum svæðum bæjarins þessa dagana og mun sú vinna standa fram á vorið.
Fuglahús fyrir veturinn
Starfsfólk garðyrkju vinnur að því þessa dagana að koma niður endurnýttum trjádrumbum með áföstum smáfuglahúsum á nokkrum leikvöllum bæjarins.
Litli Skógur verður fallegur áningarstaður
Síðastliðinn vetur hófst grisjun og hreinsun á trjám og gróðri í Litla Skógi.